Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Hver eru frumgildi samfélagsins?

Hvað er eiginlega í gangi hjá lögreglunni? Þarf ekki að fara slá á hendurnar á þeim yfirvöldum sem krefjast þess að persónu sé vísað úr landi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum gegn Kárahnjúkavirkjun? Er ekki allt í lagi hjá þeim borðalagða ríkislögreglustjóra?

Samkvæmt fréttum er krafa lögreglunnar byggð á því að þessi Miriam hafi fengið greiðslu fyrir að stunda mótmæli, hún hafi stofnað lífi og limum fólks í hættu og - og það er magnaðasta forsendan - að hún hafi brotið "gegn frumgildum samfélagsins". Þetta með greiðsluna er réttlætt með frétt í RÚV sem aftur byggðist á grínauglýsingu í Fréttablaðinu. Að sögn ógnaði hún lífi og limum fólks þegar hún klifraði upp í mastur eða bómu til að festa mótmælaborða. Við það athæfi var hún sjálf í öryggislínu og enginn nálægur til að geta orðið fyrir hnjaski, á limum eða lífi. Þessar ásakanir byggja því á ákaflega hæpnum forsendum. Þá eru frumgildin eftir . . .

Hver eru frumgildi íslensks samfélags? Tjáningarfrelsi er talið vera eitt grundvallaratriði í mannréttindum sérhvers lýðræðisríkis; er það eitt af frumgildunum sem þessi Miriam hefur unnið gegn?  Annar þáttur þessara frumgilda er málfrelsi; hefur hún unnið gegn því? Maður hlýtur að krefjast þess að lögreglan skýri það fyrir almenningi gegn hvaða grunngildum þessi stúlka hefur brotið.

Gæti það verið að eitt af frumgildunum sé að einstaklingar skuli ekki mótmæla því sem þeir eru á móti? Af einhverjum ástæðum virðist lögreglan vera á þeirri skoðun að mótmæli séu glæpur þótt friðsamleg séu.

Vinsamlegast skýrið þetta fyrir okkur sem eru dálítið áttavillt í öllu þessu standi.

Kannski er rétt að taka það fram að ég þekki hvorki haus né sporð á þessari bresku stúlku, - en ég lít svo á að rétturinn til að mótmæla sé eitt af frumgildum samfélagsins.


Til hamingju með Astrópíu

Við frú Erla fórum í bíó um daginn, sem reyndar er farið að gerast ótrúlega oft síðustu misserin. Sáum Astrópíu. Og það verður að segjast að þetta er ein skemmtilegasta og best heppnaða íslenska kvikmynd sem ég hef séð um langan aldur. Þarna hjálpaðist margt að, en það sem uppúr stendur er hvað höfundunum tekst vel að bræða saman teiknimyndir, spilaleiki og kvikmynd. Og meira að segja hljóðið virtist gallalaust að mestu. Þótt leikurinn hafi yfirleitt kannski ekki verið neinn súperbrilljans þá var hann í lagi og persónugalleríið fór nærri því að vera eins skemmtilegt og í Sódómu Reykjavík (sem skartaði um það bil flottasta týpusafni íslenskrar kvikmyndasögu). Það er full ástæða til að óska aðstandendum Astrópíu til hamingju með árangurinn.
Næst á dagskrá eru Veðramót.

Kímnigáfa Davíðs ræður ekki lengur

Nú er formaðurinn minn aftur farin(n) að hrekkja Davíð Oddsson, núna með því að hnýta í vinnustaðinn hans. Heldur því blákalt fram að peningastefna Seðlabankans hafi brugðist og bankinn því ekki staðið þá plikt sem honum ber sem æðsta peningastofnun landsins. Þetta finnst Davíð áreiðanlega sprenghlægilegt, næstum eins hlægilegt og umræðan um evruna. Það er mikil mildi að framtíð lands og þjóðar byggist ekki lengur á kímnigáfu Davíðs Oddssonar.
En maður hlýtur að spyrja sjálfan sig: Er hægt að komast að einhverri annarri niðurstöðu ef litið er í kringum sig með eugun sæmilega opin?

Sollu fyrir Condý? Dream on!

Ég las einhvers staðar að í næstu viku myndi Ingibjörg Sólrún hitta Condoleezzu Rice á fundi. Svona er það; þegar maður er ráðherra ræður maður ekki endilega við hvern maður talar. En þetta minnti mig á að ég var að lesa amerískan fréttavef um daginn, um það þegar Íslendingar kölluðu heim lið sitt frá Írak. Í athugasemdum um fréttina gerðu menn góðlátlegt grín að fjölmenni íslenska liðsins og áhrifum þess í "uppbyggingar"ferlinu. Auk þess að gera dálítið grín af forsetanum sínum:

"Dang....... I wish I could hear Bush mangle that Foreign Minister's name...."

Annar lagði fram fróma ósk og skiljanlega:

"I wonder if our Icelandic friends would be willing to trade Ingibjörg Sólrún Gísladóttir for Condaleeza Rice? We would be happy to throw in Doug Feith and draft choices to be named later."

Þetta er vissulega skiljanleg bón, en sorrí vinir vorir í vestri, ekki glæta.


Höfundur

Haukur Már Haraldsson
Haukur Már Haraldsson
Óforbetranlegur áhugamaður um stjórnmál og félagslegt réttlæti.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband