Færsluflokkur: Kvikmyndir
23.9.2007 | 11:29
Til hamingju með Astrópíu
Við frú Erla fórum í bíó um daginn, sem reyndar er farið að gerast ótrúlega oft síðustu misserin. Sáum Astrópíu. Og það verður að segjast að þetta er ein skemmtilegasta og best heppnaða íslenska kvikmynd sem ég hef séð um langan aldur. Þarna hjálpaðist margt að, en það sem uppúr stendur er hvað höfundunum tekst vel að bræða saman teiknimyndir, spilaleiki og kvikmynd. Og meira að segja hljóðið virtist gallalaust að mestu. Þótt leikurinn hafi yfirleitt kannski ekki verið neinn súperbrilljans þá var hann í lagi og persónugalleríið fór nærri því að vera eins skemmtilegt og í Sódómu Reykjavík (sem skartaði um það bil flottasta týpusafni íslenskrar kvikmyndasögu). Það er full ástæða til að óska aðstandendum Astrópíu til hamingju með árangurinn.
Næst á dagskrá eru Veðramót.
Næst á dagskrá eru Veðramót.
Bloggvinir
Tenglar
Mínir tenglar
- Vefsvæðið mitt Flest það sem máli skiptir um mig og mína
- Samfylkingin Flokkurinn sem máli skiptir
- Kennarasamband Íslands Heildarsamtök kennara
- Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins Vinnustaðurinn minn
- Upplýsingatækniskólinn Merkasti skólinn i Tækniskólanum
- Þróunarsamvinnustofnun Starfsemi Íslendinga með þróunarlöndum
Af mbl.is
Fólk
- Kaleo gefur út lag eftir þriggja ára pásu
- Ítarlegri og krítískari skoðun
- DiCaprio sagður hafa beðið kærustunnar
- Foreldrar Katrínar eru kletturinn í lífi hennar
- Harry nefndur á nafn í kæru gegn Diddy
- Svipt allri von og tímaskynjun
- Það versta sem ég hef upplifað
- Iggy Azalea hefur sagt skilið við tónlistina
- Kidman kvaddi rauða hárið
- Hnoðri verði árviss viðburður á Húsavík