Leita í fréttum mbl.is

Einangrum Ísrael

Þetta síðasta glæpaverk Ísraelsmanna er nú þegar komið á spjöld sögunnar sem hið versta af öllum þeim hryðjuverkum sem þessi þjóð haturs og hefnigirni hefur unnið gegn Palestínumönnum. Og þeir fara sínu fram vitandi sem er að þeir munu komast upp með það; alþjóðasamfélagið svíkur Palestínumenn enn einu sinni.
Það er auðséð af framgangi mála að enn einu sinni er verið að brjóta niður innviðina í samfélagi Palestínumanna; sprengja í loft upp aðsetur stjórnvalda og lögreglustöðvar, skóla og sjúkrahús. Útpælt og þrælskipulagt. Einn fullkomnasti her heimsins gegn herlausri þjóð sem í vanmætti sínum reynir að sporna gegn yfirgangi hernámsveldis.
Ég endurtek það sem ég sagði í bloggi hér fyrir neðan; Íslendingar eiga að hafa forgöngu um einangrun Ísraelsríkis í samfélagi siðaðra þjóða. Engin viðskipti við þessa þjóð, engin samskipti á sviði menningar, ekki taka þátt í mótum þar sem lið frá Ísrael taka þátt; hunsa þessa þjóð. Þannig tókst að einangra Suður-Afríku á sínum tíma; þannig er hægt að einangra Ísrael ef einhver alvara er á bak við hneyksunarorðin.
mbl.is Neita að hætta árásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

alveg satt og lika athverju erum við svona að spá í þessu þessar þjóðir hata vestrænan heim til hvers standa með þeim þar sem eina sem þau vilja er stríð og fljúga flugvélum í hús eða bara sprengja sig upp eitthver þarf að sína þeim þetta gegngur ekki án þess að eitthver þjóð standi upp till þeyra og svo hvað eigum við að utiloka þau.farðu og lestu kóranin og elskaðu alah

arnar ingi (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 15:37

2 identicon

Arnar Ingi: Já það er alveg rétt h´ja þér, á sama hátt og við íslendingar erum alltaf að fara í stríð fyrir olíugróða og slíkt, og gáfum ísraelum þetta land sem palestínumenn áttu fyrir. þ.e.a.s. ef ég held áfram með þín rök að allt sem einhver úr ákveðinni menningu eða af ákveðnum lit gerir hljóti það að eiga við um alla sem líkjast honum.

en svona í pínulítið raunverulegri kantinum, þá væri mjög fyndið að sjá þig færa einhver rök fyrir að "þessar þjóðir" eins og þú svo hlutlaust setur allar arabískar þjóðir undir sama hatt (þó að um sé að ræða palestínu) hata vestrænann heim og elska bara stríð og að fljúga flugvélum á byggingar. kannastu við marga palestínumenn sem hafa flogið á byggingar? eða ert þú bara framar en leyniþjónustur heimsinns og komst einhvernveginn að því að palestínumenn séu þessi frægu Al queda samtök? þú mátt öskra um pólitíska rétthugsun ef þú vilt, en málið er a ðallt sem þú sagðir er byggt á fáfræði, heimsku og undirstöðulausum fordómum. og samkvæmt slíkum rökum erum við íslendingar alltaf að gera loftárásir í írak t.d. þar sem við erum nú jafn hvítir og kaninn og líka í kristnu samfélagi.

Smári Roach Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 03:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haukur Már Haraldsson
Haukur Már Haraldsson
Óforbetranlegur áhugamaður um stjórnmál og félagslegt réttlæti.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband