2.7.2007 | 14:00
Stórkostleg ferð um Fjallabak syðra
Um helgina fór ég í fyrsta sinn í ferð um Fjallabaksleið syðri. Dagsetningin var ákveðin í apríl og öllu heppnari hefðum við ekki getað verið, þessi hópur sem þarna var á ferð. Þarna vorum við sem sitjum í stjórn Sigfúsarsjóðs ásamt Öddu Báru Sigfúsdóttur Sigurhjartarsonar. Hún varð áttræð á gamlársdag síðasta og þegar við sögðumst vilja halda henni veislu hryllti hún sig og sagðist vera komin með upp í kok af veisluhöldum; flestir vina hennar hefðu orðið áttræðir á síðasta ári og ekkert lát á veisluhöldum. Þegar hún var spurð hvað við gætum gert í tilefni áttræðisafmælisins sagðist hún eiga sér gamlan draum; að fara Fjallabaksleið syðri. Svo við í stjórninni ákváðum að fara með henni í slíka ferð.
Og hvílík ferð. Veðrið frábært, landslagið stórbrotið og margvíslegt. Reyndar munum við hafa verið fyrsti hópurinn sem fer þessa leið þetta sumarið, sem ekki var mjög leiðinlegt að frétta. Leiðsögumaðurinn okkar var Vigfús Gíslason, Þorlákshafnarbúi úr Skaftártungunum sem gengið hefur þarna þvers og kruss um dali og hálsa og eyðisanda, vissi allt sem vita þarf og miklu meira. Auk þess að vera skemmtilegur félagi.
Gistum svo aðfararnótt sunnudagsins á Hótel Laka í Landbroti. Ég sé raunar ástæðu til að mæla með því, svona í framhjáhlaupi.
Á sunnudeginum, í gær, dóluðum við svo niður Landbrotið, í gegnum Meðallandið, yfir í Álftaver og þaðan til Reykjavíkur.
Æðislegt!

Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
Tenglar
Mínir tenglar
- Vefsvæðið mitt Flest það sem máli skiptir um mig og mína
- Samfylkingin Flokkurinn sem máli skiptir
- Kennarasamband Íslands Heildarsamtök kennara
- Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins Vinnustaðurinn minn
- Upplýsingatækniskólinn Merkasti skólinn i Tækniskólanum
- Þróunarsamvinnustofnun Starfsemi Íslendinga með þróunarlöndum
Af mbl.is
Innlent
- Fékk alla í salnum til að rétta upp hönd
- Matsmönnum ber ekki saman um dánarorsök
- Nú er hægt að horfa á sjónvarpið í sundi
- Skilur að fólk hafi áhyggjur af frumvarpinu
- Grindavíkurbær fækkar starfsfólki
- Isavia íhugar viðbrögð við sýknudómi Hæstaréttar
- Viðræðum miðar ágætlega áfram sem er jákvætt
- Páll áfrýjar meiðyrðamáli Aðalsteins
Erlent
- Vilja að ríkið niðurgreiði verð á döner kebab
- Swinney nýr forsætisráðherra Skotlands
- Stormy Daniels bar vitni í máli Trump
- Skotárás við hús Drakes
- Mótmæli í Tel Aviv: Bindið enda á þetta stríð
- Telja sig hafa fundið hlerunarbúnað
- Danmörk og Svíþjóð auka varnarsamstarf
- Kallaði Pútín lygara, þjóf og morðingja
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.